30 ÁRA AFMÆLI HELLISBÚANS!
Hellisbúinn býður upp á drykk með hverjum miða en gestir geta einnig pantað sér drykki á borð.
Í tilefni af 30 ára afmæli Hellisbúans verða nokkrar sýningar á þessu vinsælasta leikriti Íslandssögunnar í Gamla Bíó!
Ef einhvern tímann hefur verið tilefni til að gleðjast og kitla hláturtaugarnar, þá er það núna!
Hellisbúinn er einn vinsælasti einleikur heims. Hellisbúinn hefur þegar verið sýndur í 57 löndum, yfir 1000 borgum og frá upphafi hafa tugir milljóna um allan heim séð Hellisbúann.
Jóel Sæmundsson færir Hellisbúanum nýtt líf í glænýrri sviðsetningu hans og leikstjórans Emmu Peirson en sýningin hefur verið endurskrifuð að fullu og uppfærð í takt við tímann.
Frábær skemmtun þar sem hláturtaugarnar eru kitlaðar og margar kunnulegar aðstæður koma upp.
Í Gamla Bíó lofum við frábærri kvöldstund, fullri af hlátri og gleði!
,,Salurinn hreinlega emjaði úr hlátri” - Fjarðarpósturinn
ATH - Salnum er skipt í sóttvarnarhólf og gestir sem koma saman sitja saman við borð. Vinsamlegast takið fram ef miðahafar sem kaupa miða í sitthvorri pöntun vilja sitja saman.