Back to All Events

Las Vegas Christmas Show


ATH! Tónleikarnir eru 29.nóv, 30. nóv, 1., 2. & 3. des. Hægt að kaupa miða í mat og tónleika eða bara tónleika.

Nú í fyrsta skipti, býðst að kaupa miða til jólagjafa á stórsýninguna Las Vegas Christmas Show þar sem Geir Ólafsson fer á kostum ásamt hljómsveit Don Randi og gestastjörnum.

Sjöunda árið í röð var uppselt á alla tónleikana og færri komust að en vildu. Nú er því bætt við enn fleiri dagsetningum og verða samtals fimm sýningar: 29. og 30. nóvember og 1. 2. og 3. desember 2023.

Þessir jólatónleikar eiga sér algjöra sérstöðu og fengið frábæra dóma hér heima og erlendis fyrir einstaka skemmtun og fagmennsku, rétt eins og best þekkist í Las Vegas. Tryggðu þér því miða fyrir þig og þína og upplifðu hið einstaka Las Vegas Christmas Show á íslandi!

Heimsklassa hljóðfæraleikarar frá Los Angeles ásamt íslenskum og erlendum flytjendum og gestastjörnum. Hljómsveitastjóri er Vilhjálmur Guðjónsson sem einnig útsetur ásamt sjálfum Quincy Jones, Þóri Baldurssyni og Don Randi.

Hinn heimsþekkti Don Randi hefur starfað með Elvis Presley, Frank Sinatra, Phil Spector, The Beach Boys, Nancy Sinatra, Michael Jackson og fleiri stórstjörnum í USA. Hann mætir enn og aftur með sitt bigband sem spilað hefur á stórviðburðum um allan heim í áratugi.

Borðapantanir ásamt óskum um sérþarfir sendist á gamlabio@gamlabio.is

Hátíðlegur léttur kvöldverður ásamt tónleikum 17.900 kr.

Tónleikar án kvöldverðar 8.900 kr.