Þann 5. nóvember næstkomandi mun kanadíski tónlistarmaðurinn og Íslandsvinurinn Bryan Adams verða 60 ára. Að því tilefni verða haldnir tónleikar honum til heiðurs 1. nóvember í Gamla Bíó.
Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 en barinn er opinn töluvert fyrr.
Miðasala er í fullum gangi á www.sonus.is
Bryan Adams hefur gefið út 14 breiðskífur á 44 ára ferli sínum sem tónlistarmaður, hann hefur bæði verið tilnefndur og unnið til margra tónlistarverðlauna þar með talið Grammy verðlaun fyrir lagið (Everything I do) I do it for you. Hann hefur selt yfir 65 milljón platna á heimsvísu og er einn af vinsælustu tónlistarmönnum í heimi. Tvisvar sinnum hefur Bryan Adams haldið tónleika á Íslandi, fyrra skiptið árið 1991 í Laugardalshöllinni og í seinna skiptið í Hörpu árið 2014 þar sem hann kom fram með gítar ásamt píanista.
Heiðurstónleikarnir fara fram í Gamla Bíó þar sem hljómsveit og söngvarar munu flytja hans bestu og vinsælustu lög. Hljómsveitina skipa reynslumikið tónlistarfólk úr öllum áttum.
Gunnar Ólason - Söngur
Svenni Þór - Söngur
Heiða Ólafsdóttir - Söngur
Ingólfur Sigurðsson - Trommur
Kristinn Sturluson - Gítar
Davíð Atli Jones - Bassi
Kristinn Einarsson - Hljómborð
Sveinn Pálsson - Gítar
Back to All Events
Earlier Event: October 31
Skuggamyndir frá Býsans
Later Event: November 2
Björn Bragi Djöfulsson