Back to All Events

Dikta og Jeff Who?

  • Gamla Bíó Ingólfsstræti 2a Reykjavík Iceland (map)

Loksins loksins!

Dikta og Jeff Who? í Gamla bíói 7. september 2024!

Á síðustu 20 árum hefur Dikta skipað sér sess á meðal vinsælustu hljómsveita landsins. Rokkhljómsveitin hefur á ferli sínum komið víða við, gefið út fimm breiðskífur, haldið í mörg tónleikaferðalög utan landsteinanna og spilað á öllum helstu tónleikasviðum landsins.

Hljómsveitin Jeff Who? ætti að vera flestum kunn en hún gerði garðinn frægan fyrr á þessari öld. Sveitin var talin eitt allra hressasta rokkband landsins og naut lag þeirra, Barfly, gríðarlegra vinsælda og gerir enn.

Dikta og Jeff Who? spiluðu saman á tónleikum í ófá skipti á sínum tíma og hlakka sveitirnar mikið til að leiða saman hesta sína á ný og trylla eldhressan lýðinn.