Back to All Events

Hlið við hlið

Hlið við hlið er söngleikur með lögum þjóðþekkta listamannsins Friðriks Dórs, sýndur í Gamla bíói!

Friðrik Dór er löngu orðinn landsþekktur tónlistarmaður og á hann mörg af vinsælustu lögum Íslands. Nú er loksins búið að gera söngleik með þekktustu lögum Frikka Dórs, en Hlið við hlið fjallar um borgarstrákinn Dag sem fær sumarvinnu á sveitahóteli þar sem allt er eins og það hefur verið í áraraðir. En koma hans virðist þrýsta á tengslin innan hótelsins að þolmörkum - skyndilega er sem öll fjölskyldutengsl, sambönd og vinskapir hanga á bláþræði.

Í þessari stórkostlegu sýningu leggjast allir á eitt til að sprengja út lögum Friðriks Dórs með því að segja þessa hugljúfu sögu. Falleg, skemmtileg og fyndin stórsýning sem allir hafa gaman af!

Sýningin er annað verkefni sjálfstæðs sviðslistahóps sem settu upp sýninguna Ðe Lónlí Blú Bojs í Bæjarbíói í Hafnarfirði, en hún fékk mikið lof og seldust um 20 sýningar upp.

https://www.hlidvidhlid.is

Facebook: https://facebook.com/hlidvidhlid

Instagram: https://www.instagram.com/hlidvidhlid/

Ath. Þessi sýning tekur mark af samkomutakmörkunum og gætt er vel að sóttvörnum.

Earlier Event: November 24
DAY 3578
Later Event: December 2
Las Vegas Christmas Show