Líf og dauði
Mexíkóskur matur og tónleikar í Gamla bíói
“Lifum brosandi til þess að deyja glöð” segja Mexíkanar. Það er löngu orðið heimsþekkt hvernig þeir gleðjast yfir þeim sem á undan hafa farið, fagna lífinu, dauðanum og minnast fólksins síns með litríkri gleði og veisluhöldum.Íslendingar hafa tekið hefðinni, “Degi hinna dauðu” fagnandi og á hverju ári skreytir fjöldi fólks sig og nýtur þess að stíga inn í annan hugarheim.
Í einstakri veislu í Gamla bíói fer Svanlaug Jóhannsdóttir yfir það í sögum og lögum hvernig hugmyndir dagsins gætu nýst okkur til þess að gæða lífið meiri dýpt og gleði.
Gestum býðst að gæða sér á sérhönnuðum fordrykk Don Julio, djúsí tveggja rétta máltíð og njóta tónleika í framhaldi af því - eða mæta beint á tónleika.
Söngkona og sögumaður: Svanlaug Jóhannsdóttir
Matseðill kvöldsins
Fordrykkur: Sérhannaður kokteill í tilefni kvöldsins í boði Don Julio Tequila
Forréttur
Stökkar tortilla kökur og guacamole
Grillaður shishito pipar
Nauta flauta
Aðalréttur
Taco
Heimagerðar mjúkar maiz kökur
Lamb barbacoa og hægeldaður grís
Guacamole og salsa verde
Ef um séróskir er að ræða í sambandi við mat eða sætaskipan þá hafa samband við gamlabio@gamlabio.is
Tónlistarstjóri: Guillaume Heurtebize
Hljófæraleikarar: Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir, Andri Ólafsson og Eiríkur Rafn Stefánsson.
Sviðshönnuður og skúlptúrar: Erla Lilliendahl