TVENNUM AUKATÓNLEIKUM BÆTT VIÐ!
11 OG 12. NÓVEMBER.
SALA HAFIN Á ÞÁ BÁÐA.
ATH: EKKI ER HÆGT AÐ BÆTA VIÐ FLEIRI TÓNLEIKUM.
Fagnaðu 10 ára afmæli plötunnar My Head is an Animal með Of Monsters Men í Gamla bíói. Það var einmitt þar sem útgáfutónleikar þessarar fyrstu plötu sveitarinnar fóru fram fyrir tíu árum.
Hljómsveitin mun flytja MHIAA í heild sinni á báðum tónleikum og þar að auki ný og eldri uppáhaldslög, með mismunandi lagavali milli tónleika
NÝ ÚTGÁFA
Hljómsveitin mun einnig gefa út sérstaka afmælisútgáfu af MHIAA þann 29. október. Platan er endurhljóðblönduð útgáfa af íslensku útgáfu plötunnar frá 2011 og inniheldur auk þess tvö áður óútgefin bónuslög. Annað lagið, Phantom, er eitt laganna sem tryggðu sveitinni sigur í Músíktilraunum árið 2010. Hægt er að forpanta plötuna og sérstakan varning í tilefni útgáfu hennar hér.
Athugið: Í samræmi við núgildandi samkomutakmarnir verður salnum skipt í tvö svæði; gólf og svalir. Á hverjum tónleikum verða um 500 miðar í boði á gólfið og um 100 á svalirnar; allt standandi og sama verð. Kaupandi velur milli miðatýpanna tveggja í kaupferlinu.