Back to All Events

Sumarkjólaball Heimilistóna

Það verður sumarstemning í Gamla bíó föstudaginn 7. júní þegar hin stórskemmtilega hljómsveit Heimilistónar stígur á stokk og leikur fyrir dansi. Hljómsveitina skipa fjórar af ástsælustu leikkonum þjóðarinnar, þær Elva Ósk Ólafsdóttir, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Vigdís Gunnarsdóttir en þær eru ekki bara leikkonur heldur líka söngkonur og hljóðfæraleikarar.

Í meira en aldarfjórðung hafa þær glatt unga sem aldna og slegið í gegn með eigin lögum ásamt öðrum slögurum sem þær hafa gert að sínum.

Að sjálfsögðu mun leynigestur mæta og taka lagið með sveitinni.

Ballið hefst kl. 22:00 og húsið opnar kl. 21:00.

Miðaverð er 4000 kr. í forsölu á Tix og 5000 kr. við innganginn.

Slóð á miðasölu: https://tix.is/is/event/17496/sumarkjolaball-heimilistona/

Forskot á sæluna má finna á Spotify!

https://open.spotify.com/artist/54pkENTtEyBIqIdb0XoyWB...

Earlier Event: May 18
Mínus
Later Event: August 2
Innipúkinn 2024