Back to All Events

Þorláksmessutónleikar Jónasar Sig

- Miðasala hefst kl. 12 þriðjudaginn 9. nóv. -

Jónas Sigurðsson heldur ásamt sinni einstöku hljómsveit árlega Þorláksmessutónleika í Gamla bíó.

Að þessu sinni verða haldnir tvennir tónleikar.

Þeir fyrri eru örtónleikar kl. 17 fyrir þau sem eru enn á þönum við að klára síðustu erindin fyrir aðfangadag.
Kr. 3500.-

Seinni tónleikarnir eru kl. 21 og hugsaðir fyrir þau sem eru löngu búin að öllu og tilbúin að taka á móti jólahátíðinni.
Kr. 6500.-

Hljómsveit Jónasar skipa Ómar Guðjónsson á gítar, Arnar Þór Gíslason á trommur, Guðni Finnsson á bassa og Tómas Jónsson á hljómborð.

Missið ekki af göldróttri stemningu í boði þessara frábæru tónlistarmanna og tryggið ykkur miða sem fyrst á Tix.is

Earlier Event: December 5
Las Vegas Christmas Show
Later Event: May 18
DAY 3578