Back to All Events

Hálendishátíð - Styrktartónleikar

Við kynnum dásamlega tónlistarveislu með frábærum listamönnum til styrktar og heiðurs Hálendi Íslands og einstakri náttúru landsins.
Listamennirnir sem leggja Hálendinu lið eru:

• JFDR
• Sóley
• Moses Hightower
• Snorri Helgason

Sérstakir gestir - Of Monsters and Men

Ekki missa af einstakri tónlistarveislu!
Aðeins 500 miðar í boði.

Húsið opnar klukkan 19:00.
-------
Hálendi Íslands er einstök perla á heimsvísu, hvernig sem á það er litið. Við eigum villtustu víðerni í heimi, við eigum gljúfur og gíga, frussandi fossa og við eigum eldhraun, við eigum drynjandi jökulár og við eigum kyrrð, við eigum grjótharða jökla og bullandi hveri, við eigum eyðimerkur og við eigum safaríkar gróðurvinjar á ólíklegustu stöðum.

Tónleikarnir eru styrktartónleikar, listamennirnir gefa vinnu sína þessu mikilvæga málefni. Ágóða af tónleikunum verður varið í baráttuna fyrir Hálendi Íslands svo við öll og komandi kynslóðir geti notið dásemda þess.

Earlier Event: October 14
Reykjavík Chamber Orchestra (IS)
Later Event: October 21
Vök útgáfutónleikar